Vinnustofa 2. desember 2026
Íslandsstofa og Íslenski ferðaklasinn leiða mótun gervigreindarstefnu fyrir íslenska ferðaþjónustu, í samstarfi við atvinnuvegaráðuneytið og markaðsstofur landshlutanna. Við bjóðum fyrirtækjum í greininni að taka þátt í vinnustofu 2. desember undir stjórn Group NAO, dansks ráðgjafarfyrirtækis sem hefur unnið með yfir 200 áfangastöðum að gervigreind og áfangastaðaþróun. Þar verður farið yfir það nýjasta í gervigreindarmálum og fyrirtæki deila sínum lærdómi.
Þátttakendur vinna með gervigreindartól að sviðsmyndum fyrir íslenska ferðaþjónustu undir stjórn Group NAO, sem hefur unnið með yfir 200 áfangastöðum.
Raunveruleg notkunardæmi og aðferðir sem nýtast strax í eigin rekstri, og fyrirtæki deila sínum lærdómi.
Niðurstöður vinnustofunnar leggja grunn að gervigreindarstefnu íslenskrar ferðaþjónustu. Þitt fyrirtæki hefur bein áhrif á hana.
Af hverju núna
Ferðamenn eru farnir að spyrja gervigreind hvað eigi að gera á Íslandi og hvern eigi að bóka. Hvernig Ísland birtist í þeim svörum ræðst á næstu misserum, og af því hvernig greinin bregst við núna.
87%Samkvæmt markaðskönnun Íslandsstofu nota ferðamenn sem velja áfangastaði eins og Ísland gervigreind í mun meiri mæli en aðrir ferðamenn, og allt að 87% þeirra treysta upplýsingunum sem hún gefur.
Því glatast mikið samkeppnisforskot ef Ísland er ekki sýnilegt á þessum nýja upplýsingamiðli og ef réttar upplýsingar eru ekki veittar.
Þátttakendur vinna með gervigreindartól að sviðsmyndum fyrir íslenska ferðaþjónustu, skoða raunveruleg notkunardæmi og forgangsraða aðgerðum sem stefnan byggir á. Þitt fyrirtæki getur haft bein áhrif á stefnuna og fær að sama skapi til baka aðferðir og lærdóm sem nýtist strax í eigin rekstri.
Skráning
Fylltu út formið hér að neðan. Við staðfestum skráninguna með tölvupósti og sendum reikning á fyrirtækið. Við vonumst til að sjá þitt fyrirtæki við borðið.
Í samstarfi við